Pro Tec

Gluggar eru annað og meira en gler. Þeir eru arkitektúr, birta og upplifun.

 

BM Vallá býður nú afburðagluggalausnir frá PRO TEC þar sem hver gluggi er hannaður með þarfir viðskiptavinarins í huga.

Hver gluggi er bæði úr tré og áli sem hefur reynst einstaklega vel við íslenskar aðstæður. Nánari upplýsingar má finna í bæklingum hér á síðunni eða á heimsíðu PRO TEC, www.protecwindows.dk. PRO TEC framleiðir tré- og álglugga, hurðir og heilar glerhliðar sem samtvinna á einstakan hátt vandaðar lausnir og gæði.

Ytra byrði glugganna er úr áli til að hlífa við áhrifum veðurs, en innri hlutinn er úr viði sem skapar hlýlega og náttúrulega áferð.

PRO TEC býður allar stærðir og gerðir af gluggum í margvíslegum litum og með öllum tegundum glers.

Helstu eiginleikar PRO TEC glugganna:

• Hægt er að hafa stóra gluggafleti samfellda vegna sveigjanlegrar framleiðslutækni.

• Dýpt gluggapósta er breytileg til að mæta íslensku vindálagi.

• Tvöfaldir póstar eru ekki nauðsynlegir sem býður upp á skemmtilegri hönnun.

• Meira ljósop glers.

• Mjög vel einangraðir.

• Gluggarnir eru viðhaldslitlir þar sem ytri hluti þeirra er úr áli.

• Lausnir með Schüco-álhurðum.

Vörumyndir