Óðalssteinn

Óðalssteinn fær sérstaka meðhöndlun til að ná fram gömlu, sígildu yfirbragði og hefur verið mjög eftirsóttur þar sem endurskapa á andrúmsloft liðinna tíma. Arkitektar og hönnuðir hafa oft valið óðalsstein við endurgerð sögulega mikilvægra svæða. Má þar nefna umhverfi Þingvallakirkju sem dæmi.

 

Óðalssteinn er einnig fáanlegur stálkúlublásinn. Sú meðhöndlun gefur steininum veðrað útlit með skarpari línum en sú hefðbundna. Óðalssteinakerfið samanstendur af þremur stærðum 6 og 8 cm þykkra steina. Einnig er í boði óðalstorgsteinn sem framleiddur er í þremur stökum stærðum sem hægt er að nota allar saman eða hverja fyrir sig.

 

Litir: Grár, svartur, jarðbrúnn, múrsteinsrauður og skógarbrúnn.


Skoða verðlista

Vörunúmer:

Heiti:

Þykkt:

Þyngd/m²:

m2 í poka:

Álagsfl.:

26-110

Óðalssteinn

6 cm

135 kg

9,0 m2

II

26-120

Óðalssteinn

8 cm

185 kg

6,4 m2

III

 

Vörumyndir