Flotgólf er hraðharðnandi og sjálfútleggandi flotefni fyrir ný gólf. Flotgólf myndar allt að 30 mm þykkt lag.
Flotgólf:
Flotgólf er blanda úr portlandssementi, völdum sandi og bætiefnum. Þegar flotgólfið er blandað með vatni myndar það sjálfútleggandi steypu, sem er sérstaklega vel til þess fallin að mynda slétt yfirborð á lárétta fleti.
Notkunarsvið:
Flotgólf er sérstaklega hannað til ílagna á ný gólf. Það má leggjast út í 5–30 mm þykk lög. Flotgólfið má nota sem ílögn í íbúðar- og skrifstofuhúsnæði, á bæði ný og gömul gólf og einnig til að rétta af ný og gömul gólf.
Kostir:
* Það er mjög hagkvæmt að blanda flotgólf og dæla því.
* Hraðharnandi. Við eðlileg skilyrði má ganga á flotgólfi 4 tímum eftir að það hefur verið lagt.
* Sjálfsléttandi. Óþarft að slétta með múrskeið eða bretti.
* Flotgólf er sementsefni. Þess vegna er auðvelt að leggja það, jafnvel á rakt undirlag úr steinsteypu.
* Öruggt. Flotgólf er í grunninn úr sementi og sandi. Flotgólfið er prófað af Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins.