Flex flísalím eru mjög rakaþolin lím ætluð til að líma keramikflísar, steinflísar, steypuplötur, steypuflísar, einangrunarplötur o.fl. á undirlag úr steini eða öðrum efnum.
Límin henta vel þar sem gera má ráð fyrir rakaálagi og að mikið mæði á, bæði úti og inni, á lárétta sem lóðrétta fleti. Hraðlím er mjög rakaþolið hraðharðnandi lím með sama notkunarsvið.
Efnislýsing:
Flex flísalím eru sements- og pólymerbundin lím tilbúin til notkunar, aðeins þarf að bæta í þau réttu magni af vatni. Flísalímin standast kröfur um eðlis- og vinnslueiginleika samkvæmt DIN 18156 staðli.