ímur-fín-blanda-fyrir-sjonsteypu
Ímúr fín blanda fyrir sjónsteypu
Fín viðgerðarblanda er hraðharðnandi trefjastyrkt blanda ætluð til viðgerða á steinsteypu.
Notkunarsvið:
T.d. til viðgerða á uppsöguðum sprungum, láréttum og lóðréttum flötum, köntum, steypuhreiðrum o.fl. Blönduna er hægt að nota bæði úti og inni.
Efnislýsing:
Fín viðgerðarblanda er sementsbundið efni blandað pólymer og er tilbúið til notkunar, aðeins þarf að bæta í það réttu magni af vatni. Blandan er með 3 mm löngum polypropylen trefjum.