Múrgrunnur er ætlaður til að grunna undir múrlög á steypta og múraða fleti.
Grunnurinn bætir viðloðun, minnkar vatnsdrægni undirlagsins og hindrar að loftbólur myndist, t.d. við útlögn Ímúr gólfflotefna. Grunninn má nota bæði úti og inni.
Efnislýsing:
Múrgrunnurinn er akrýlplastþeyta, sem hefur mikinn stöðuleika. Í grunninum eru efni sem bæta viðloðun þegar blaut ílögnin kemur yfir.