Fjaðurstuðull segir til um hve mikið steypan svignar undan álagi. Í byggingarhlutum eins og plötum skiptir því miklu að fjaðurstuðull sé hár. Fjaðurstuðullinn fer, auk styrks, að töluverðu leyti eftir fylliefnum steypunnar. Á mynd að neðan má sjá ýmsar mælingar BM Vallá á fjaðurstuðli. Í þjóðarviðauka við þolhönnunarstaðalinn ÍST EN 1992-1-1:2004/NA:2010 eru ákvæði um að margfalda eigi gildi fjaðurstuðuls staðalsins með 0,9 ef notuð eru þétt fylliefni en 0,6 ef opin efni eru notuð.
BM Vallá notar í flestum tilfellum þétt fylliefni með háum fjaðurstuðli, en samt er nauðsynlegt að í tæknilýsingu hönnuðar komi fram krafa um fjaðurstuðul eða um þétt fylliefni þegar það á við.

Það tekur í flestum tilfellum marga mánuði eða jafnvel ár fyrir steypu að þorna út þannig að hún sé komin í rakajafnvægi. Það veldur oft vandræðum því þetta getur tafið að endanleg gólfefni séu sett á. Það skiptir miklu fyrir útþornunina að valin séu þétt fylliefni því það flýtir fyrir útþornun. Auk þess að nota þétt fylliefni selur BM Vallá ehf. sérhannaða steypu sem er enn fljótari að þorna út
(sjá kafla um sérsteypur).