Í staðlaðri steypu frá BM Vallá eru ýmsar sementsgerðir. Algengast er Kraftsement frá Sementsverksmiðjunni sem er hágæðasement sem gefur mjög veðrunarþolna og góða steypu, en einnig Rapidsement frá AAlborg portland, hraðsement og portlandsement frá Sementsverksmiðjunni.
Við val á sementi þarf að taka tillit til veðurfars, stærðar og þykktar byggingarhluta og veðrunarálags. Hraðsement hentar t.d. mjög vel þegar steypt er í frosti eða ef stefnt er að háum styrk eftir einn sólarhring, en hraðsement ætti ekki að nota í þykkum byggingarhlutum því þá er hætt við vandamálum vegna hitamyndunar og sprungum af þeim völdum.
Portlandsement og hraðsement inniheldur 6% kísilryk og 3% líparít í stað 4% kísilryks í Kraftsementi (ekkert kísilryk í Rapidsementi). Þessar sementsgerðir henta því mjög vel þar sem þörf er á miklu efnaþoli eða sérstaklega þéttri steypu eða þar sem notuð eru mjög alkalívirk fylliefni.