sjalfutleggjandi-sandílogn
Sjálfútleggjandi sandílögn
Sjálfútleggjandi sementsbundin sandílögn
Sjálfútleggjandi sementsbundna ílögn má leggja sem afréttingarlag ofan á steypu en hentar ekki ofan á einangrun. Hún er oftast lögð út eins og anhydrit með hjálp rörasladdara og þannig er hægt að ná sléttri áferð. Steypustyrkur er að jafnaði C-12 en aðrir styrkleikaflokkar eru einnig fáanlegir. Sandílögnin hefur svipaða eiginleika og perluílögnin en gefur að jafnaði sléttara yfiborð en meiri sprungumyndun.
Ráðlegt er að halda styrk ílagnarinnar sem lægstum til að minnka hættu á losi frá undirlagi. Ílögnin hagar sér svipað og aðrar sandlaganir. Hún springur, en ef undirvinnan er í lagi mun ekki verða los frá undirlagi. Eins og í öðrum sandlögunum er ráðlegt að halda þykkt hennar sem minnstri til að minnka hættu á losi, gjarnan undir 4–6 cm. Til að ná að jafna hana út þarf þó að jafnaði að lágmarki 3 cm þykkt. Ílögninni er dælt með lítilli dælu, þeirri sömu og anhydrit.