BM - VALLÁ
+354 412 5000 - Contact us
LANDSCAPE ARCHITECT

Landslagsráðgjöf

 

BM Vallá býður þér ókeypis landslagsráðgjöf til að útfæra hugmyndirnar, hvort sem þú ert að skipuleggja nýjan garð eða gamlan.


Bóka þarf tíma hjá söludeild BM Vallá í síma 412 5050. Ráðgjöfin er hálf klukkustund og er veitt í lystihúsinu í hjarta Fornalundar.

Það er skemmtilegt verkefni að standa í lóðarframkvæmdum. Undirbúðu þig vel undir landslagsráðgjöfina til að hún nýtist þér sem best.
 
Þú færð tölvugerða teikningu sem hægt er að framkvæma eftir.


Landslagsráðgjöf


Bóka þarf tíma hjá söludeild BM Vallá í síma 412 5050. Ráðgjöfin er hálf klukkustund og er veitt í lystihúsinu í hjarta Fornalundar.

Ráðgjöfin er veitt í tveimur þrepum

 

 

Hálftíma ráðgjöf hjá landslagsarkitekt. Hann mótar hugmyndirnar með þér og helstu útfærslur.

 

Nokkrum dögum eftir ráðgjöfina færð þú afhenta tölvugerða vinnuteikningu sem hægt er að framkvæma eftir, þar sem hugmyndirnar eru útfærðar með efnislista, magntölum og tilboði.

 

 

Athugaðu að ráðgjöfin snýst eingöngu um útfærslur á vörum BM Vallá.

Teikningin er einkaeign BM Vallá þar til verki er lokið.

 

 


 

Í söludeildinni færðu kort af Fornalundi þar sem þú getur séð staðsetningu hverrar vöru fyrir sig.


Þannig undirbýrð þú þig fyrir ráðgjöfina

 

Til þess að ráðgjöfin nýtist þér sem best er nauðsynlegt að þú undirbúir þig vel:


 

  • Kynntu þér vel þessa handbók og mótaðu þér skoðun á því hvaða efni frá BM Vallá þér
  • finnst helst koma til greina í garðinum þínum
  • Skoðaðu Fornalund vel og þær lausnir sem þar er að finna.

 

Gögn sem taka þarf með


Eftirfarandi gögn er nauðsynlegt að þú takir saman og komir með í ráðgjöfina

 

 - Grunnmynd í kvarðanum 1:100

 - Útlitsteikningar af húsinu í kvarðanum 1:100*

 - Afstöðumynd í kvarðanum 1:500*
 

 - Ljósmyndir af húsinu og núverandi lóð *

 

     * Gott að hafa en ekki nauðsynlegt.


Mikilvægt


Athugaðu að ofangreind gögn eru forsenda fyrir ráðgjöfinni. Ef þú átt ekki þessar teikningar

getur þú fengið ljósrit af þeim hjá viðkomandi byggingafulltrúa.



Hverjir geta nýtt sér landslagsþjónustuna?


Landslagsráðgjöf BM Vallá er hugsuð fyrir alla þá er ætla að taka til hendinni við

lóða-framkvæmdir:

 

 - Eigendur einbýlis-, rað- og parhúsa.

 - Húsfélög í fjölbýlishúsum.

 - Fyrirtæki og stofnanir sem vilja hressa upp á ímyndina.
 - Byggingaverktaka sem eru að byggja og selja og vilja skila vönduðum lóðafrágangi.


Þjónusta fyrir hönnuði


Við aðstoðum hönnuði ef óskað er við útfærslur steinlagna og teiknum upp mynstur og sérlausnir.

 

BM-VALLÁ :: Bíldshöfða 7 :: 110 Reykjavík :: Sími +354 412 5000 :: skrifstofa@bmvalla.is
Panta handbókina