Flokka í: deildir - stafrófsröð - starfsheiti
|
|
|
|
Akranes
Á Akranesi er starfrækt steypustöð og einingaverksmiðja þar sem framleiddar eru Smellinn húseiningar
Akureyri
Á Akureyri er BM Vallá með sölu- og skrifstofuhald, þar er starfrækt steypustöð, eininga- og helluverksmiðja og bílaverkstæði. Almenn símsvörun og skiptiborð fyrirtækisins eru á Akureyri.
Bíldshöfði
Á Bíldshöfða 7 í Reykjavík er aðalskrifstofa BM Vallá til húsa. Þar er steypustöð fyrirtækisins, helluverksmiðja, verkstæði og tækni- og gæðadeild. Flutningsdeild BM Vallá er stýrt frá Bíldshöfða.
Bolungarvík
Á Bolungarvík er starfrækt steypustöð.
Borgarnes
Í Borgarnesi eru reknar framleiðslu- og þjónustueiningar, þar er valsað stál og ál, framleiddir naglar, starfrækt blikk- og járnsmiðja og einnig er þar rafmagnsverkstæði. Í Borgarnesi er BM Vallá líka með sölu- og skrifstofuhald.
Breiðhöfði
Á Breiðhöfða 3 í Reykjavík er starfrækt söludeild fyrir hellur og steina og annað það sem viðkemur garðinum auk múrbúðar. Þar er einnig lagerstöð fyrir hellur og múrvörur.
Flúðir
Á Flúðum starfrækir BM Vallá límtrésverksmiðju. Þar er einnig unnið að hönnun og skrifstofuhaldi.
Garðabær
Í Garðabæ eru starfræktar 4 framleiðsludeildir, húseiningadeild, pípugerð, smáeiningadeild og múrverksmiðja. Þar er einnig til húsa söludeild.
Reyðarfjörður
Á Reyðarfirði er starfrækt steypustöð. Þar er einnig starfrækt söludeild fyrir hellur og steina og annað það sem viðkemur garðinum.
Reykholt
Í Reykholti starfrækir BM Vallá einingaverksmiðju sem framleiðir samlokueiningar úr polyurethan og steinull. Þar er einnig framleiðsla á áfellum og ýmis sérsmíði.
Stórhöfði
Að Stórhöfða 23 í Reykjavík er BM Vallá með fjölþætta starfsemi. Þar er öflugt byggingasvið sem fæst við hönnun og ráðgjöf til viðskiptavina í margvíslegar lausnir. Þar er rekin söludeild, auk skrifstofuhalds, t.d. bókhald og fjármál, markaðsdeild, innkaupadeild og starfsmannasvið.