Beint í efni

LANDBÚNAÐAR- OG HESTHÚS


Hús fyrir bestu vinina

Þegar byggja þarf gott skjól fyrir þarfasta þjóninn, mjólkurkýrnar, sauðféð eða hænsnin þá eru einingahús byggð með Smellinn húseiningum snjallur valkostur. Þau eru viðhaldslítil, auðvelt að halda þeim hreinum og þola vel ágang bæði dýra og tækja. Hægt er að útfæra margar útfærslur af landbúnaðar- og hesthúsum og byggja einingahús sem mætir þörfum dýra og eiganda sinna.

Styttri byggingartími

Einingahúsin eru afar fljótleg í uppsetningu. Húsin eru steypt við kjöraðstæður innandyra og eru oftast tilbúin á styttri tíma, enda þarf ekki að taka tillit til veðurfars líkt og þekkist í staðsteyptum húsum. Miklar gæðakröfur og eftirlit er haft með allri framleiðslunni, enda er starfsemin gæðavottuð skv. ISO 9001 og einingarnar CE vottaðar.

Viðhaldslítil völun og munstursteypa

Forsteyptu einingarnar frá BM Vallá eru þekktar fyrir mikið úrval viðhaldslítillar völunar (7 cm þykk veðurkápa) á ytra byrði hússins sem fæst í nokkrum litum. Einnig er hægt að steypa einingar með munsturáferð í margskonar gerðum og áferðum. Framleiðandi munsturdúks er framleiðandinn Noe og þar má sjá vöruframboðið.

Húseiningarnar henta líka fyrir húsgerðir sem á að klæða með áli eða stálklæðningum, timbri, flísum eða öðru efni.

Myndagallerí

Hér má sjá nokkur hesthús, kjúklingabú og fjós sem hafa verið byggð með Smellinn húseiningum. Líkt og sjá má er hægt að fara margar leiðir í hönnun og ásýnd húsanna. Möguleikarnir eru nær endalausir.

Hver eru næstu skref?

Við höfum tekið saman algengar spurningar og svör við ýmsu er tengist ferlinu að byggja einingahús með Smellinn húseiningum.

Næst í ferlinu er að kalla eftir tilboði í framleiðslu einingahússins með því að senda okkur teikningar. Þá fyrst getur vinnan hafist við verkefnið. Þér er einnig velkomið að heyra beint í söludeildinni okkar í síma 412 5050 ef þú vilt fá nánari upplýsingar.