VIÐSKIPTASKILMÁLAR

ERT ÞÚ Í VIÐSKIPTUM?
Þeir viðskiptaskilmálar sem birtir eru á netsíðu BM Vallá ehf. hverju sinni eru gildandi viðskiptaskilmálar félagsins. Viðskiptaskilmálar, ásamt viðkomandi sérskilmálum, gilda um öll viðskipti BM Vallá ehf. (hér einnig nefnt félagið) og viðskiptamanna þess (hér einnig nefndir kaupendur), nema um annað sé samið sérstaklega eða áskilið af BM Vallá ehf. Sé ósamræmi á milli almennra viðskiptaskilmála og sérstakra viðskiptaskilmála, gilda hinir sérstöku viðskiptaskilmálar.
ALMENNIR VIÐSKIPTASKIPTASKILMÁLAR
Þeir viðskiptamenn sem taka vöru út í reikningsviðskiptum samþykkja um leið viðskiptaskilmála félagsins eins og þeir eru á hverjum tíma.
1. Gildissvið skilmálanna
1.1. Undir skilmála þessi fellur öll vara og þjónusta, sem keypt er af BM Vallá ehf. Félagið áskilur sér rétt til að breyta bæði almennum viðskiptaskilmálum og sérskilmálum án fyrirvara. Með skilmálum þessum falla eldri skilmálar úr gildi.
2. Pantanir og tilboð
2.1. Kominn er á samningur um viðskipti á milli BM Vallá ehf. og viðskiptamanns þegar viðskiptamaður hefur pantað vöru t.d. í gegnum síma eða tölvupóst, staðfest tilboð, undirritað samning eða samningsviðauka, tekið við vöru og/eða greitt fyrir vöru eða þjónustu. Að öðru leyti gilda samningalög um viðskipti aðilanna.
2.2. Gefi BM Vallá ehf. viðskiptamanni verðtilboð með fyrirfram ákveðnum gildistíma er BM Vallá ehf. óbundið af samþykki sem berst eftir þann tíma. Sé tilboð ekki með gildistíma gildir það í 30 daga frá dagsetningu þess, nema annað sé tekið fram.
3. Framsal
3.1. Framsal á umsömdum réttindum til þriðja aðila er óheimilt og öðlast ekki gildi nema kveðið sé sérstaklega á um heimild til slíks framsals í samningi eða sérskilmálum.
4. Sérstakir samningar
4.1. Almennir viðskiptaskilmálar þessir, ásamt samþykktu tilboði, sérstökum skilmálum auk samnings sjálfs og eftir atvikum samningsviðauka við viðskiptamann, fela að jafnaði í sér heildarsamning aðilanna um viðskiptin. Ef um er að ræða sérstakan samning við viðskiptamann, s.s. verksamning, gilda ákæði samnings framar viðskiptaskilmálum þessum.
5. Verð, skilmálar, greiðslukjör, tilboð, afslættir o.fl.
5.1. Allt verð sem félagið gefur upp er grunnverð. Verð er ýmist gefið skv. gjaldskrá félagsins á netinu eða skv. tilboði.Virðisaukaskattur er innifalinn í uppgefnu verði nema annað sé sérstaklega tekið fram.Gjaldskrá getur breyst án fyrirvara.
5.2. Staðgreiða skal nema annað sé umsamið.
5.3. Ef um er að ræða staðgreiðsluafslátt eða magnafslátt dregst fjárhæð afsláttar frá grunnverði. Afslættir eru ekki gefnir af tilboðsverði.
5.4. Öll afgreidd vara er eign BM Vallá ehf. þar til fullnaðargreiðsla hefur átt sér stað. Greiðsla með viðskiptabréfum, greiðslukorti eða öðrum greiðslumiðli telst ekki fullnaðargreiðsla fyrr en full skil hafa verið gerð gagnvart BM Vallá ehf. Sala, framsal, veðsetning eða önnur ráðstöfun söluhlutar er óheimil án undangengins samþykkis BM Vallá ehf. á meðan félagið telst eiga eignarrétt að hlut.
5.5. Í sérstökum skilmálum og sértilboðum BM Vallá ehf. til viðskiptavina kunna að vera gerðir fyrirvarar eða sett skilyrði. Ganga þau atriði sem þar koma fram framar viðskiptaskilmálum þessum.
Eftirfarandi áskilnaður er gerður:
Áskilinn er réttur til verðbreytinga án fyrirvara.
BM Vallá ehf. áskilur sér rétt til að gera breytingar á framleiðslu sinni án fyrirvara.
BM Vallá ehf. ábyrgist ekki að eiga allar framleiðsluvörur sínar á lager.
6. Söluverð og eignarréttarfyrirvarar
6.1. Kaupandi veitir félaginu söluveð í hinu keypta, sbr. lög nr.75/1997 um samningsverð
Veðrétturinn nær til allra þeirra hluta sem greindir eru í samningi/á reikningi þar til samningsverð/reikningur er að fullu greiddur ásamt vöxtum og kostnaði ef við á. Veðið er til tryggingar kröfu félagsins til alls þess endurgjalds sem greint er í samningi/reikningi, ásamt vöxtum og kostnaði. Hluti þá er veðsettir eru má kaupandi hvorki selja né veðsetja án skriflegs samþykkis félagsins. Ef vanskil verða á greiðslu þeirra krafna sem veðrétturinn nær til, getur BM Vallá ehf. leitað fullnustu kröfu sinnar.
6.2. Félagið selur vörur sínar með eignarréttarfyrirvara og skal um meðferð hans farið eftir 42. gr. laga nr. 75/1997 um samningsveð.
7. Undirverktakar
7.1. BM Vallá ehf. áskilur sér rétt til að ráða undirverktaka til að inna af hendi allar þær skyldur sem félagið hefur tekið að sér í tengslum við selda vöru og/eða þjónustu. Undirverktakar starfa á ábyrgð félagsins gagnvart viðskiptavinum þess. Flutningsaðilar vöru sem félagið útvegar fyrir kaupendur eru ekki undirverktakar félagsins. Kaupendur eru í beinu samningssambandi við slíka flutningsaðila og greiða þeim fyrir flutninginn.
8. Afhending vöru
8.1. Afhending söluhlutar, framsal skjala eða önnur yfirfærsla ráðstöfunarréttar yfir söluhlut fer fram gegn greiðslu söluverðs nema um reikningsviðskipti eða staðgreiðslulán Visa og Eurocard sé að ræða.
8.2. BM Vallá ehf. vátryggir ekki vöru í flutningum. Óski viðskiptamaður eftir því að vara verði vátryggð í flutningum ber honum sjálfum að annast vátrygginguna.
8.3. Áhætta af hinu selda flyst úr hendi BM Vallá ehf. til kaupanda við afhendingu félagsins. Samningur um akstur vöru á afgreiðslustað breytir ekki því tímamarki sem áhættan af kaupunum flyst yfir til kaupanda. Ef hlutar er ekki vitjað eða honum veitt viðtaka á afhendingartíma og það má rekja til kaupanda eða atvika sem hann varða, flyst áhættan yfir á kaupandann þegar hlutur er honum til ráðstöfunar og viðtökudáttur verður af hans hálfu.
8.4. BM Vallá ehf. ber enga ábyrgð á þeim aðstæðum sem upp kunna að koma og valda því að ekki er hægt að afferma og/eða afhenda vörur á afhendingarstað. Kaupandi á enga kröfu á félagið ef afhending steypu dregst af ástæðum sem félagið getur ekki stýrt. Kaupandi á enga kröfu á félagið vegna tapaðra vinnustunda vegna þess að bíða þarf eftir steypu.
9. Eiginleikar vöru
9.1. Um eiginleika vöru, og gæðastaðla sem ætlað er að tryggja þá eiginleika, fer skv. birtum upplýsingum BM Vallá ehf. á heimasíðu félagsins og byggingareglugerð sem í gildi er á hverjum tíma. Á heimasíðu félagsins eru birtar ítarlegar upplýsingar um eiginleika vöru og notkunarleiðbeiningar. Það er alfarið á ábyrgð viðskiptamanns ef hann fylgir ekki leiðbeiningum um notkun vöru.
10. Vanskil og dráttarvextir
10.1. Sé reikningur ekki greiddur í síðasta lagi á eindaga, þ.e. fyrir 14. dag næsta mánaðar eftir úttektarmánuð, reiknast dráttarvextir skv. 6. gr. l. 38/2001 af heildarskuld viðskiptamanns við félagið frá fyrsta degi næsta mánaðar á eftir úttektarmánuð.
10.2. Félagið áskilur sér rétt til að fella niður alla afslætti sem kunna að hafa verið gefnir af vöruúttektum skv. úttektarnótum og/eða reikningum, þar með talda afslætti sem veittir eru í sérstökum tilboðum og/eða samningum við viðskiptamann án fyrirvara, ef greitt er eftir eindaga eða eftir atvikum umsaminn greiðsludag ef það er annar dagur en eindagi.
11. Innheimtukostnaður
11.1. Falli skuld í eindaga er vanskilagjald innheimt af viðskiptamanni. Einnig eru viðskiptamanni send innheimtubréf og innheimtuviðvörun. Kostnaður vegna þessa, er skuldfærður á viðskiptareikning viðskiptamanns hjá félaginu.
11.2. Vísað er til innheimtulaga nr. 95/2008 og gildandi reglugerða varðandi innheimtugjöld.
Sé skuld ekki greidd innan þeirra fresta sem viðskiptamanni eru veittir með innheimtubréfi og/eða innheimtuviðvörun hefur félagið fulla heimild til að senda viðskiptaskuld í löginnheimtu án frekari fyrirvara.
12. Ábyrgðarmenn
12.1. Ábyrgðarmönnum er sérstaklega bent á að kynna sér vandlega efni ábyrgðaryfirlýsinga sem þeir skrifa undir. Einnig eru ábyrgðarmenn hvattir til að kynna sér lög um ábyrgðarmenn. BM Vallá ehf. sendir lögin til ábyrgðarmanna, sé þess óskað.
12.2. Með undirritun sinni á ábyrgðaryfirlýsingu eru ábyrgðarmenn að ábyrgjast skuld viðskiptamanns/aðalskuldara, sem sína eigin skuld. Séu ábyrgðarmenn fleiri en einn ábyrgist hver um sig fulla greiðslu gagnvart kröfuhafa. Almennar reglur íslensks réttar gilda síðan um uppgjör milli ábyrgðaraðila.
12.3. Afturkalli ábyrgðarmaður ábyrgð sína, ber honum að afturkalla ábyrgðina með sannanlegum hætti. Ábyrgðin stendur þá fyrir þeirri skuld sem til staðar er þegar ábyrgðin er afturkölluð, auk vaxta og kostnaðar sem fellur á innheimtu skv. ábyrgðinni eftir að hún er afturkölluð. Greiðslum viðskiptamanns inn á skuld er ráðstafað fyrst inn á þann hluta skuldar sem ekki er tryggður með ábyrgð.
12.4. Ef fyrirtæki og lögaðilar í viðskiptum eru seld, sameinuð eða aðrar breytingar verða á rekstri þeirra, er það á ábyrgð þeirra að tilkynna BM Vallá ehf. um breyttar forsendur viðskiptanna, eftir atvikum að afturkalla þá ábyrgð sem til staðar er. BM Vallá ehf. ber ekki með neinum hætti ábyrgð á að fylgjast með slíku.
13. Vöruskil
13.1. Vöru fæst aðeins skilað:
Ef varan er sannanlega gölluð og ekki er unnt að bæta gallann með viðgerð.
Ef varan er í upprunalegu ásigkomulagi án sjáanlegra skemmda og ónotuð.
Í samræmi við ákvæði viðkomandi samnings, hafi verið gerður sérstakur samningur um kaupin.
Skilafrestur vöru skv. ofangreindu er 30 dagar. Vöru fæst einungis skilað gegn framvísun reiknings. Sérpantaðri vöru fæst ekki skilað.
Kaupanda ber að kanna hvort kreditreikningur og/eða móttökukvittun sé í samræmi við vöruskil og ber hann ábyrgð á því hafi hann tekið við kreditreikningi eða móttökukvittun sem er ekki rétt. Getur hann ekki krafist leiðréttinga vegna þessa.
14. Ábyrgð á vöru og takmörkun ábyrgðar
14.1. Ábyrgð BM Vallá ehf. á göllum í framleiðsluvörum er takmörkuð við það að félagið afhendir nýja vöru frá verksmiðju í stað þeirrar sem verður að skipta um. Ábyrgð félagsins nemur þó aldrei hærri fjárhæð en viðskiptamaður greiddi fyrir vöruna í upphafi. Félagið tekur ekki ábyrgð á kostnaði við viðgerð eða ábyrgð á afleiddu tjóni. Lögð er áhersla á að viðskiptamaður skoði vöru við móttöku, þ.e. áður en hún er notuð eða skeytt við fasteign, þ.m.t. hellur lagðar og að gallar á vöru séu tilkynntir umsvifalaust til félagsins. Eftir að BM Vallá ehf. hefur afhent vörurnar á umsaminn afhendingarstað eftir beiðni viðskiptamanns, ber BM Vallá ehf. enga ábyrgð á því að vörunar verði fyrir tjóni eða valdi tjóni gagnvart þriðja aðila. Við mat á því hvort söluhlutur er gallaður skal miðað við það tímamark þegar áhættan af söluhlut flyst yfir til kaupanda sbr. grein 8.
14.2. Ef kaupandi leggur ekki fram kvörtun innan árs frá þeim degi er söluvara er afhent getur hann ekki borið galla fyrir sig síðar. Sé um neytendakaup að ræða skal kaupandi leggja fram kvörtun innan tveggja ára frá þeim degi er hann veitti söluhlut viðtöku eða fimm ára sé söluhlutur byggingarefni sem ætlað er verulega lengri endingartími en almennt gerist um söluhluti.
14.3. Ábyrgð félagsins er miðuð við að viðskiptavinur hafi notað vöruna í samræmi við leiðbeiningar og venjulega eða eðlilega notkun. Hafi félagið gefið út lýsingu á notkun vörunnar, handbækur eða aðrar leiðbeiningar um notkun vörunnar er ábyrgð félagsins háð því að notkun vöru hafi verið í samræmi við það. Kvörtun vegna gallaðrar vöru eða þjónustu skal berast strax og gallans verður vart. Kaupanda ber skylda til að skoða vöru vandlega við móttöku og tilkynna félaginu um galla áður en vöru er skeytt við byggingu og hellur eða steinar lagðir.
14.4. Viðskiptamenn félagsins eiga engan rétt til skaðabóta, þegar vanefndir orsakast af óviðráðanlegum atvikum (Force Majeure) svo sem vinnudeilum, styrjöldum, uppreisnum, náttúruhamförum, aðgerðum stjórnvalda á sviði gjaldeyris- og viðskiptamála, viðskiptabönnum, hafnbönnum, almennum samgönguhindrunum, orkuskorti og óviðráðanlegum atvikum í samskiptum við undirverktaka.
14.5. Framvísa skal sölureikningi til staðfestingar á ábyrgð vegna vöru.
14.6. Ábyrgð nær ekki til vinnu eða aukakostnaðar, t.d. aksturs og ferðatíma. Ábyrgð nær ekki til kostnaðar sem hlýst af breytingum annarra en starfsmanna félagsins á hinu selda.
14.7. Ábyrgð fellur niður í eftirtöldum tilvikum:
Þegar tjón verður sem stafar af rangri meðferð, misnotkun eða slysni.
Viðgerð eða tilraun til viðgerðar hefur verið gerð af öðrum en starfsmönnum BM Vallá án samþykkis fyrirtækisins.
Átt hefur verið við hið selda þannig að skemmd hefur hlotist af.
14.8. Kaupandi á engar kröfur á hendur félaginu vegna eiginleika hins keypta sem hann varð var við, mátti verða var við eða mátti sjá við móttöku eða notkun, af leiðbeiningum, lýsingum eða öðrum upplýsingum er fylgdu hinu keypta.
14.9. Félagið ber í engum tilvikum ábyrgð á rekstrartapi kaupanda eða öðru óbeinu tjóni hans, þ.m.t. glötuðum ágóða eða ráðgerðum sparnað, hvort sem tjónið er rakið til galla, skemmda eða eyðileggingar á hinu keypta eða til annarra ástæðna.
14.10. Kaupandi getur ekki borið neitt það fyrir sig sem galla sem hann vissi eða mátti vita um þegar kaupin voru gerð. Hafi kaupandi ekki sinnt rannsóknarskyldu við afhendingu getur kaupandi ekki borið fyrir sig neitt það sem hann hefði þá átt að veita athygli. Framangreint gildir einnig hafi kaupandi fyrir kaup rannsakað sýnishorn af hlutnum eða látið það hjá líða án gildrar ástæðu og gallinn varðar eiginleika sem sjá mátti á sýnishorninu.
14.11. Þurfi BM Vallá að greiða kaupanda bætur í tengslum við samning þennan getur kaupandi aldrei farið fram á greiðslu bóta sem eru hærri en sem nemur kaupverði hins keypta.
15. Viðskiptareikningar
15.1. Óski viðskiptamaður eftir reikningsviðskiptum skal hann sækja sérstaklega um það á skrifstofu félagsins. Það er forsenda reikningsviðskipta að viðunandi tryggingar séu til staðar fyrir reikningsúttektum. Viðskiptareikningar BM Vallá ehf. eru mánaðarreikningar. Úttektartímabil er hver almanaksmánuður.
15.2. Gjalddagi skuldar á viðskiptareikningi hvers mánaðar er 1. dag næsta mánaðar á eftir. Eindagi er 14. dagur næsta mánaðar á eftir úttektarmánuði.
15.3. BM Vallá ehf. setur eftirfarandi skilyrði fyrir reikningsviðskiptum:
Að hvorki viðskiptamaður né ábyrgðarmaður sé skráður á vanskilaskrá Creditinfo.
Sé viðskiptamaður lögaðili setur félagið það sem skilyrði fyrir reikningsviðskiptunum að þau séu tryggð með ábyrgð ábyrgðarmanns sem er þinglýstur eigandi fasteignar og ekki skráður á vanskilaskrá Creditinfo.
Félagið áskilur sér rétt til að afla frekari trygginga fyrir reikningsviðskiptum en greinir í töluliðum 1 – 3 hér að ofan, s.s. bankaábyrgða, veðtrygginga eða annarra trygginga sem félagið metur fullnægjandi.
15.4. Félagið áskilur sér rétt til þess að breyta áður ákveðnum afsláttarkjörum viðskiptamanns án fyrirvara eða sérstakrar tilkynningar án þess að litið sé á það sem uppsögn viðskipta.
16. Greiðsla mánaðarreikninga
16.1. Það fyrirkomulag er viðhaft við innheimtu viðskiptaskuldar vegna reikningsviðskipta hjá BM Vallá ehf. að greiðsluseðlar eru sendir viðskiptamanni í byrjun hvers mánaðar. Telji viðskiptamaður skuldina of háa ber honum að gera athugasemdir til félagsins fyrir 14. dags þess mánaðar sem greiðsluseðillinn er sendur út eða birtur í heimabanka.
16.2. Þeir viðskiptamenn sem fá senda greiðsluseðla samþykkja að greiða sérstakt greiðsluseðlagjald. Gjaldið er ekki innheimt ef greiðsluseðill birtist eingöngu í heimabanka að ósk viðskiptamanns.
17.Úttektarheimildir
17.1. Við upphaf reikningsviðskipta tekur félagið ákvörðun um úttektarheimildir viðskiptamanns. Úttektarheimildir eru ákvarðaðar á grundvelli mats félagsins á þeim tryggingum, sem viðskiptamaður leggur fram við upphaf viðskiptanna. Félagið áskilur sér rétt til að endurskoða það mat án sérstakrar tilkynningar eða viðvörunar. Úttektarheimildir kunna því að breytast án þess að það sé tilkynnt sérstaklega.
18. Úttektaraðilar
18.1. Viðskiptamaður skal tilkynna félaginu um þá menn (úttektaraðila) sem heimild hafa til að taka út í reikning hans og/eða óska eftir lykilorði eða leyninúmeri sem nota má til úttekta. Sé slíkt ekki gert eru allar úttektir í viðskiptareikning hjá félaginu á ábyrgð viðskiptamanns. Viðskiptamanni ber að tilkynna félaginu með sannanlegum hætti ef úttektaraðili hefur ekki lengur heimild til úttekta fyrir hans hönd. Úttektaraðili telst því hafa heimild til að taka út í reikning fh. viðskiptamanns uns breytingar þar á hafa verið tilkynntar félaginu sannanlega. Hafi viðskiptamaður ekki tilkynnt um sérstaka úttektaraðila eða óskað eftir lykilorði eða leyninúmeri, eru allar úttektir í viðskiptareikning hjá félaginu, hverju nafni sem nefnast, á ábyrgð viðskiptamanns. Starfsmenn félagsins geta óskað eftir því að úttektaraðilar sýni skilríki til að sanna á sér deili við hverja úttekt.
19. Annað
19.1. Eftir því sem við á gilda lög um lausafjárkaup og lög um neytendakaup um viðskipti skv. viðskiptaskilmálum þessum.
20. Lögsaga og varnarþing
20.1. Um samninga BM Vallá ehf. og viðskiptavina þess, skilmála þessa og aðra skilmála þeim tengdum fer skv. íslenskum lögum.
20.2. Komi til málaferla eða löginnheimtu vegna viðskipta félagsins og viðskiptamanns má reka mál vegna þessa fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

BM VALLÁ
BM Vallá hefur um langt árabil verið í fararbroddi íslenskra iðnfyrirtækja og gegnt forystuhlutverki í framleiðslu fyrir íslenskan byggingavörumarkað. Þar er saman komin áratuga þekking og reynsla á framleiðslu og lausnum fyrir íslenska byggingaraðila.
BM Vallá er í 100% eigu eignarhaldsfélagsins Hornsteins ehf.