Vörunúmer: 11-350X

Plan- og stéttasteypa | Fínkorna | C35

Steypa sem hentar vel til notkunar utandyra, eins og veggi, plötur, gangstéttir, bílaplön og svalir. Steypan er hluti af Berglindi, vistvænni steypu frá BM Vallá, og kemur stöðluð með 20% minna kolefnisspori heldur en hefðbundin steypa* og hægt að fá hana með allt að 40% minna kolefnisspori.

Söluráðgjafar okkar ráðleggja þér við val á steypu sem hentar þínu verki og veita upplýsingar um verð.

Fáðu tilboð

*Samanborið við steypu samkvæmt kröfu byggingarreglugerðar. 

58.189 kr. VSK M3

Vara væntanleg

Vörunúmer: 11-350X Flokkur:

Grunngerð steypunnar er til notkunar utandyra og hentar sérstaklega vel í plötur, veggi, gangstéttir, bílaplön og svalir. Hún er með fínkornastærð og hentar því vel fyrir byggingarhluta sem erfitt er að komast að og þrengsli til staðar.

Mesta kornastærð (Dmax): 16 mm

Steypan frá BM Vallá er sérhönnuð fyrir íslenskar aðstæður og rík áhersla er lögð á að minnka kolefnisspor steypunnar. Öll framleiðsla lýtur ítrustu gæðastöðlum enda er BM Vallá með ISO 9001 gæðavottun – og eini íslenski steypuframleiðandinn með slíka vottun. Þegar steypa er valin í mannvirki þarf að horfa til mismunandi eiginleika steypunnar, staðsetningar byggingarhluta og niðurlögn hennar.

Ráðgjafar BM Vallá búa yfir mikilli reynslu og þekkingu er tengjast steypuframkvæmdum og ávallt hægt að leita til þeirra varðandi góð ráð.

Hafðu samband
Grunngerð steypu

Úti

Byggingarhluti

Gangstétt, Plön, Plötur, Svalir, Veggir

Vistvæn steypa

Berglind 20, Berglind 30, Berglind 40

Styrkleikaflokkur

C35