Fornsteinn A slitsterkur, er mjög hagkvæmur í notkun auk þess sem kerfið býður upp á nær endalausa möguleika á fallegum mynstrum með breiðri fúgu, þar sem mosi getur komið sér fyrir og gefið umhverfinu náttúrulegan svip. Fornsteinsfleygur er sérstakur steinn sem gefur möguleika á því að búa til ýmis mynstur í fornsteinakerfinu. Hægt er að nota fleyginn bæði með fornsteini A og B og skapa formhrein hringmynstur, blævængsmynstur eða sex- og átthyrninga í lögninni.
Fornsteinakerfið samanstendur af fimm stærðum af steinum sem fást bæði í 6 og 8 cm þykkt.
Slitsterk útfærsla er fyrir götur með meðalþunga og þunga umferð.
Staðallitir eru grár, jarðbrúnn og svartur. Möguleiki er á öðrum litum í sérpöntun.
Vörunúmer: 26-028
8 cm SL. Fornsteinn A
Fornsteinn A rekur ættir sínar til miðaldastræta Evrópu. Fornsteinn er einn vinsælasti steinninn í vörulínu BM Vallá og er að finna á mörgum rótgrónum stöðum, t.d. í Grjótaþorpinu í Reykjavík.
Þyngd: 185.00 kg
Verð frá: 11.944 kr. M2