Grassteinn setur skemmtilegan svip á umhverfið og brúar bilið milli grænna og steinlagðra svæða.
Hann er tilvalinn í:
- Gestabílastæði eða innkeyrslur þar sem bílar standa ekki lengi í senn.
- Lítið notaðar aðkomuleiðir.
- Fáfarna göngustíga eða jaðra á stígum og bílastæðum.
- Bílastæði við sumarbústaði.
- Umferðareyjur eða aðra staði þar sem búast má við að farartæki aki upp á gras.
- Aðkomu fyrir sjúkra- og slökkvibifreiðar.
Stærð:
40×40 cm | þykkt 8 cm