Modena-hellurnar eru kunnuleg sjón um allt land, enda þrautreynt og hagkvæmt efni á verandir, sólpalla, stíga og gangstéttir.
Hellurnar eru 6 cm þykkar og fást í fjölmörgum mismunandi stærðum og með fjarlægðarrákum sem auðvelda lögn og auka stöðugleika lagnarinnar.
Hægt er að velja úr fjölbreyttu úrvali jafnþykkra steina í öðrum litum til að brjóta upp form og fleti lagnarinnar.
Stærð:
20×10 cm | þykkt 6 cm
Modena fæst einnig í stærðum:
10×10 cm | þykkt 6 cm
30×30 cm | þykkt 6 cm