Grunngerð steypunnar er til notkunar utandyra og hentar sérstaklega vel í plötur og veggi, einnig í gangstéttir, bílaplön, svalir og stéttir.
Mesta kornastærð (Dmax): 25 mm
Mesta vatns- og sementshlutfall: 0,45
Steypan frá BM Vallá er sérhönnuð fyrir íslenskar aðstæður og rík áhersla er lögð á að minnka kolefnisspor steypunnar. Öll framleiðsla lýtur ítrustu gæðastöðlum enda er BM Vallá með ISO 9001 gæðavottun – og eini íslenski steypuframleiðandinn með slíka vottun. Þegar steypa er valin í mannvirki þarf að horfa til mismunandi eiginleika steypunnar, staðsetningar byggingarhluta og niðurlögn hennar.
Ráðgjafar BM Vallá búa yfir mikilli reynslu og þekkingu er tengjast steypuframkvæmdum og ávallt hægt að leita til þeirra varðandi góð ráð.
Hafðu samband