Rappmúr er sementsbundin sprautumúrblanda tilbúin til notkunar, aðeins þarf að bæta í hana réttu magni af vatni. Rappmúr er vatnsheldin sprautumúrblanda, þ.e. nýútlögð múrhúð þornar (tapar vatni) mun hægar en blanda sem ekki er vatnsheldin.

Vörunúmer: bmvalla-vara-prufa
Rappmúr 25kg
Rappmúr er milligróf sprautumúrblanda ætluð til að rappa steypta og hlaðna fleti. Einnig hentar að nota blönduna til að líma upp einangrun, hlaða milliveggi og til ílagna á lárétta fleti, þegar yfirborðið er pússað. Blönduna er hægt að nota bæði úti og inni.
Þyngd: 25.00 kg
2.342 kr. VSK poki
Þyngd | 25.00 kg |
---|