Vörunúmer: 11-250Þ

Sérþjál steypa | C25

Steypa með sérþjálni sem hentar vel þegar steypa þarf í aðstæðum sem krefjast mjúkrar steypu, t.d. undir gluggum, sökkla eða veggi.

Söluráðgjafar okkar ráðleggja þér við val á steypu sem hentar þínu verki og veita upplýsingar um verð.

Fáðu tilboð

55.001 kr. VSK M3

Vara væntanleg

Vörunúmer: 11-250Þ Flokkur:

Grunngerð steypunnar er til notkunar utandyra og hentar sérstaklega vel í sökkla og veggi. Aukin þjálni gefur steypunni eiginleika sem eru mitt á milli hefðbundins sigmáls og sjálfútleggjandi steinsteypu. Það hentar vel að hafa aukna þjálni þegar verið er að steypa undir glugga eða aðrar aðstæður sem krefjast sérstaklega mjúkrar steypu. Ólíkt sjálfútleggjandi steypunni þarf og má víbra þessa steypu. Hún er til í öllum styrkleikaflokkum.

Steypan frá BM Vallá er sérhönnuð fyrir íslenskar aðstæður og rík áhersla er lögð á að minnka kolefnisspor steypunnar. Öll framleiðsla lýtur ítrustu gæðastöðlum enda er BM Vallá með ISO 9001 gæðavottun – og eini íslenski steypuframleiðandinn með slíka vottun. Þegar steypa er valin í mannvirki þarf að horfa til mismunandi eiginleika steypunnar, staðsetningar byggingarhluta og niðurlögn hennar.

Ráðgjafar BM Vallá búa yfir mikilli reynslu og þekkingu er tengjast steypuframkvæmdum og ávallt hægt að leita til þeirra varðandi góð ráð.

Hafðu samband
Grunngerð steypu

Úti

Byggingarhluti

Sökkull, Veggir

Styrkleikaflokkur

C25