Grunngerð steypunnar er til notkunar innandyra og hentar sérstaklega vel í þartilgerða sjónsteypuveggi. Mikilvægt er að hafa í huga að til þess að ná þeirri ásýnd sem hönnun gerir ráð fyrir þarf að vanda sérstaklega við niðurlögn steypunnar. Þannig er mikilvægt að nota steypumót sem eru þétt og með óskemmdu yfirborði, að steypan sé víbruð niður eftir sérstökum reglum og mótaolían þarf að vera sérhönnuð í þessum tilgangi.
Steypan frá BM Vallá er sérhönnuð fyrir íslenskar aðstæður og rík áhersla er lögð á að minnka kolefnisspor steypunnar. Öll framleiðsla lýtur ítrustu gæðastöðlum enda er BM Vallá með ISO 9001 gæðavottun – og eini íslenski steypuframleiðandinn með slíka vottun. Þegar steypa er valin í mannvirki þarf að horfa til mismunandi eiginleika steypunnar, staðsetningar byggingarhluta og niðurlögn hennar.
Ráðgjafar BM Vallá búa yfir mikilli reynslu og þekkingu er tengjast steypuframkvæmdum og ávallt hægt að leita til þeirra varðandi góð ráð.
Hafðu samband