Beint í efni
Mínar Síður

BYGGJUM VISTVÆNNI FRAMTÍÐ

BM Vallá framleiðir hágæða byggingarvörur fyrir mannvirkjagerð, þ.m.t. steinsteypu, forsteyptar húseiningar, hellur og múr- og flotefni. Mikil áhersla er lögð á vistvænni steypu, sjálfbærni og hringrásarhugsun.

Framleiðslan byggir á sjötíu ára reynslu, þekkingu og gæðum sem standast ströngustu kröfur við íslenskar aðstæður. BM Vallá er eini íslenski steypuframleiðandinn með vottað ISO 9001 gæðastjórnunarkerfi.

UMHVERFISMÁL OG KOLEFNISHLUTLEYSI

Umhverfismál og sjálfbær nýting auðlinda er rauður þráður í starfseminni og hefur BM Vallá sett sér það metnaðarfulla markmið að verða umhverfisvænsti steypuframleiðandi landsins.

Markvisst er stefnt að því að starfsemi og steypuframleiðsla BM Vallár verði kolefnishlutlaus árið 2030.

HELLUR OG STOÐVEGGIR

MÚR- OG FLOTBLÖNDUR

HÚSEININGAR

FORSTEYPTAR HÚSEININGAR

Húseiningar eru hagkvæmur valkostur fyrir fólk sem hugar að byggingaframkvæmdum. Allar húseiningarnar eru sérhannaðar og forsteyptar innanhúss við bestu mögulegu aðstæður.

Styttri byggingartími er einn helsti meginkostur einingahúsa þar sem þau rísa almennt hraðar en staðsteyptar byggingar. Það getur skilað sér í lægri byggingarkostnaði og minni óvissu.

KÍKTU TIL OKKAR

Verið velkomin í múr- og fagverslanir BM Vallár í Reykjavík og á Akureyri. Í verslunum okkar finnur þú allt fyrir múrverk, steypu, hellulagnir og garðeiningar.
Í nýrri verslun okkar að Bíldshöfða 7 er einnig söludeild og sýningarsvæði þar sem sérfræðingar veita trausta ráðgjöf um vörur og framkvæmdir við húsið og garðinn.

Bíldshöfði 7 | 110 Reykjavík

Höfðasel 4 | 300 Akranesi

Sjafnargata 3 | 603 Akureyri

Allt það markverðasta úr starfseminni, fréttir og fróðleikur sem við höfum tekið saman fyrir viðskiptavini okkar og aðra áhugasama um vistvænni mannvirkjagerð.