STEYPA | ALGENGASTA BYGGINGAREFNIÐ

Gæði og umhverfismál er leiðarljósið
BM Vallá hefur framleitt steypu fyrir íslenskar aðstæður í 70 ár og byggir framleiðslan á þekkingu, reynslu og gæðum sem endast og standast ítrustu álagsprófanir við íslenskar aðstæður. BM Vallá er eini íslenski steypuframleiðandinn með vottað ISO 9001 gæðastjórnunarkerfi.
Umhverfismál og sjálfbær nýting auðlinda er rauður þráður í starfseminni og hefur BM Vallá sett sér það metnaðarfulla markmið að verða umhverfisvænsti steypuframleiðandi landsins.
Vöruframboð tekur mið af þeim áherslum og með Berglindi – vistvænni steypu er hægt að fá steypu í nokkrum flokkum með mismikinn kolefnissparnað. Áhersla er lögð á umhverfisyfirlýsingar í vöruframboðinu, sjá umhverfisyfirlýsingar (EPD). Auk þess er hægt að fá steypu sem uppfyllir skilyrði Svansins og BREEAM.

Þarf að panta steypu?
BM Vallá starfrækir steypustöðvar í Reykjavík og á Akranesi og afhendir steypu til viðskiptavina í nálægð við þau svæði. Hægt er að panta steypu með því að hringja beint í steypustöð BM Vallár, síminn er 412 5100.
Steypustöð BM Vallár: 412-5100 | Opið: Mán-fös: 7:00-16:00
Ef þig vantar upplýsingar/ráðgjöf um verð eða val á steypu er best að hringja til sölusviðs í síma 412-5050 eða hafa samband með því að smella á hlekkinn.
Afhending á steypu
Algengast er að steypubílar afhendi steypu tilbúna til notkunar á verkstað. Það er þó hægt að fá tilbúna steypu, „smá slatta“ ef um lítið magn er að ræða og sækja viðskiptavinir þá steypu til okkar og fá afhent í plastkari á vörulager BM Vallár að Breiðhöfða 3.
Almennur afhendingartími steypu
Mán-fös: kl. 7:30-15:30
Almennur afhendingartími á „smá slatta“
Mán-fös: kl. 9:00-12:00 og 13:00-16:00
PS: Við mælum með að þú pantir steypu með góðum fyrirvara til að tryggja þann afhendingardag sem hentar þér best.


Sérsteypur
BM Vallá býr yfir mikilli sérþekkingu á steypugerð og framkvæmdum sem gerir fyrirtækinu kleift að bjóða upp á sérsteypur fyrir margvísleg verkefni.
Þar á meðal er boðið upp á sjónsteypu, litaða steypu, ryðhamlandi steypu, steypu með sérstakri frostvörn eða annars konar steypu sem hönnuðir kjósa.
Hafðu samband við okkur til að fræðast um sérlausnir fyrir þitt mannvirki.
Steypudælur
Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval öflugura steypudæla sem tryggja hraða og örugga framkvæmd. Úrvalið spannar allt frá litlum og liprum steypudælum, sem henta vel við þröngar aðstæður, upp í stórar, kraftmiklar dælur sem eru tilvaldar fyrir umfangsmiklar steypuframkvæmdir.
Mikil áhersla er lögð á öryggismál við notkun steypudæla og afhendingu á steypu. Til að tryggja hámarksöryggi eru steypudælurnar yfirfarnar árlega af framleiðanda ásamt því að allar dælur eru með gúmmístúta í stað stálstúta sem dregur verulega úr hættu á slysum við steypudælingu á byggingarstað.
