Steypudælur
Fjölbreytt úrval af öflugum steypudælum leysa verkið hratt og örugglega. Allt frá liprum litlum dælum sem henta vel við þröngar aðstæður upp í stórar, langar og kröftugar sem henta vel í stór verk.
Allar dælurnar eru skoðaðar einu sinni á ári af erlendum aðila. Einnig er búið að uppfylla ströngustu skilyrði á dælunum þannig að allar dælur eru með gúmmístúta í stað stálstúta til að tryggja fyllsta öryggis viðskiptavinarins.
Er hönnuð til að steypa í þröngum aðstæðum hún er útbúinn skotbómu sem gerir henni kleift að stilla sér upp í lágri lofthæð lámarkshæð er 5,7m. Lítil og öflug dæla.
Skoða vinnuradíusBM Vallá er með þrjár 38 metra dælur. Dælan er 5 arma. Mjög öflug tæki og geta leyst flest verk.
Skoða vinnuradíusEr nýjasta og afkastamesta dælan. Hún er 47m og með 5 arma. Einnig er hún stærsta dæla landsins.
Skoða vinnuradíus
SP305 er stimpil dæla sem er notuð til að dæla sandlögunum og steypu frá 50mm slöngum uppí 100mm. Dælir frá 0-100m en það fer eftir steyputegund og slöngustærð.

Turbosol er snigil dæla sem er notuð til að dæla inn anhydriti og fínni sandlögunum, hægt að 100m lárétt og slöngustærðin er 50mm.