12.02.2026
BM Vallá er Menntafyrirtæki ársins 2026
BM Vallá var valið Menntafyrirtæki ársins 2026 við afhendingu Menntaverðlauna atvinnulífsins. Fyrirtækið var eitt þriggja sem tilnefnd voru í ár og hlýtur verðlaunin fyrir framúrskarandi starf á sviði fræðslu- og menntamála.
Við hjá BM Vallá erum afar stolt af þessari viðurkenningu, þar sem hún endurspeglar sameiginlegt átak starfsfólks okkar undanfarin ár. Hún er staðfesting á því að fræðsla og þróun hafa raunverulega breytt vinnustaðnum okkar, eflt okkur sem hóp og styrkt menningu fyrirtækisins.
Í rökstuðningi dómnefndar segir: „Fræðsla er ekki jaðarverkefni, heldur órjúfanlegur hluti af erfðamengi fyrirtækisins bæði í rekstri og mannauðsmálum. Frá árinu 2020 hefur fyrirtækið lyft grettistaki í fræðslumálum innan byggingariðnaðarins og markvisst umbreytt menningu, viðhorfum og sjálfstrausti starfsfólks. Hjá BM Vallá starfar fjölþjóðlegur hópur fólks og hefur fyrirtækinu tekist að tryggja raunverulegt aðgengi allra að fræðslu með inngildandi nálgun, fræðslu á vinnutíma og lausnum sem taka mið af raunverulegum aðstæðum íslensks vinnumarkaðar. Með ástríðu, metnaði og mælanlegum árangri, sýnir BM Vallá í verki hvernig fræðsla getur eflt einstaklinga, styrkt fyrirtæki og haft jákvæð áhrif á samfélagið í heild.“

Stolt af vegferðinni okkar
Helga Fjóla Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs hjá Hornsteini og BM Vallá, tók á móti verðlaununum fyrir hönd fyrirtækisins: „Það eru rosalega margir hjá okkur sem hafa ekki fundið sig innan hefðbundna skólakerfis og stærsti sigurinn í svona vegferð er að sjá einstaklinga sem allt í einu fá trú á sjálfan sig, stíga út fyrir þægindahringinn og fara í skóla aftur. Það er alveg ótrúlega fallegt. Við ætlum að byggja áfram vistvænni framtíð og þá er ég ekki bara að tala um í byggingum heldur erum við að hugsa út frá samfélaginu í heild.“
Við viljum færa SA og öðrum aðildarfélögum kærar þakkir fyrir viðurkenninguna og um leið óska öðrum tilnefndum fyrirtækjum innilega til hamingju. Það er ánægjulegt að sjá hversu mörg fyrirtæki leggja metnað í að efla menntun og hæfni á íslenskum vinnumarkaði.
