19.01.2026
Starfsfólk eflir íslenskukunnáttu með BaraTala
Hornsteinn, ásamt dótturfélögum sínum BM Vallá og Björgun-Sement, hefur undanfarin þrjú ár notað smáforritið BaraTala sem hluta af markvissri uppbyggingu íslenskukennslu fyrir starfsfólk af erlendum uppruna. Forritið hefur reynst afar árangursrík leið til að efla íslenskukunnáttu og styðja við jákvæða vinnustaðamenningu þar sem vellíðan og inngilding eru í forgrunni.
Þátttaka eykst milli ára
Góð þátttaka starfsfólks hefur skilað sér í áberandi framförum. Hlutfall starfsmanna sem taka virkan þátt í íslenskunámi jókst úr 50% í 67% á tímabilinu 2024-2025. Auk þess kláruðu starfsmenn um 70% fleiri æfingar í BaraTala en árið á undan. Mælingar sýna jafnframt aukið sjálfstraust og betri hæfni í daglegum samskiptum á vinnustaðnum, sem hefur jákvæð áhrif á bæði starfsánægju og samvinnu.
Eftir óskum og ábendingum starfsfólks voru sett á laggirnar ný námskeið á árinu, þar sem lögð var sérstök áhersla á fjölbreytileika, andlegan líðan, íslenska menningu og starfstengdan orðaforða. Þar var meðal annars fjallað um hugtök sem tengjast umhverfisverkefnum fyrirtækisins og lestri byggingateikninga. Með þessari nálgun er fræðslan enn frekar tengd daglegu starfi og raunverulegum verkefnum, sem eykur bæði gagnsemi námsins og færni starfsfólks í samskiptum.
Desemberáskorun BaraTala
Í desember stóð fyrirtækið fyrir áskorun í BaraTala þar sem markmiðið var að ljúka tveimur námskeiðum: Forsteyptar einingar (e. Precast Units) og fjölbreytileiki (e. Diversity).
Þátttakan fór langt fram úr væntingum og námstími starfsfólks náði 454 klukkustundum í desember – sem er nýtt met í notkun appsins. Af þeim starfsmönnum sem kláruðu bæði námskeiðin voru Adam Amdzierz Bartoszewicz og Luke Richard Sherman dregnir út og hlutu verðlaun fyrir. Auk þess fengu þeir Adam Jaroch, Ragal Dombek og Gintaras Viskontas sérstakar viðurkenningar fyrir mesta virkni meðan áskorunin stóð yfir.

