Útveggir fást einangraðir eða óeinangraðir. Veggirnir eru steyptir innandyra við bestu mögulegu aðstæður ýmist á einingaborðum eða lóðréttum batterísmótum. Allt raflagnaefni er sett í eininguna, þ.e. dósir og rör, samkvæmt teikningum rafhönnuðar. Sama gildir um aðra íhluti sem hönnuðir óska eftir.
1. Einangraðir útveggir eða svokallaðar forsteyptar samlokueiningar, skiptast í þrjú mismunandi lög
- 150-200 mm þykkan burðarvegg úr steypu
- 100 mm einangrun
- 70 mm þykka veðurkápa
Hægt er að fá einangruðu útveggina með viðhaldslítilli völun (7 cm þykk veðurkápa) eða stálmótaáferð á ytra byrði hússins. Einnig er hægt að steypa einingar með munsturáferð í margskonar gerðum og áferðum. Framleiðandi munsturdúks er framleiðandinn NOE og þar má sjá vöruframboðið. Þá er hægt að útbúa einingarnar fyrir ál- eða stálklæðningu, timbri, flísum eða öðru efni.
2. Óeinangraðir útveggir, eða kaldir veggir eru notaðir sem innveggir eða útveggir
Óeiningraðir útveggir eru líkt og nafnið gefur til kynna einangraðir að utan og klæddir ýmist með múrkerfi, timbur.- eða álklæðningum.
Allar útveggjaeiningar eru járnbentar eftir kröfum hönnuða.