Beint í efni
Mínar Síður

MENNTAFYRIRTÆKI ÁRSINS 2026

BM Vallá var valið Menntafyrirtæki ársins 2026 á Menntadegi atvinnulífsins.
Við erum þakklát og stolt yfir að vera handhafi menntaverðlaunanna.

BYGGJUM BETUR SAMAN

Forsteyptar húseiningar eru hagkvæmur kostur fyrir þá sem vilja hanna hús frá grunni – hvort sem um er að ræða íbúðarhús, sumarbústað, fjölbýli eða atvinnuhúsnæði.

GERÐU VEL VIÐ ÞÍNA FASTEIGN

Hjá BM Vallá færðu réttu viðgerðar- og steypublöndurnar fyrir allar múr- og steypuviðgerðir. Við ráðleggjum þér um rétt efnisval og leiðbeinum með notkun svo að múrverkið heppnist sem best.

MINNKUM KOLEFNISSPOR
BYGGINGA

Með Berglindi, vistvænni steypu frá BM Vallá er hægt að minnka kolefnisspor steypu í byggingum um allt að 45%.

BYGGJUM VISTVÆNNI FRAMTÍÐ

BM Vallá framleiðir hágæða byggingarvörur fyrir mannvirkjagerð, þ.m.t. steinsteypu, forsteyptar húseiningar, hellur og múr- og flotefni. Mikil áhersla er lögð á vistvænni steypu, sjálfbærni og hringrásarhugsun.

Framleiðslan byggir á sjötíu ára reynslu, þekkingu og gæðum sem standast ströngustu kröfur við íslenskar aðstæður. BM Vallá er eini íslenski steypuframleiðandinn með vottað ISO 9001 gæðastjórnunarkerfi.

UMHVERFISMÁL OG KOLEFNISHLUTLEYSI

Umhverfismál og sjálfbær nýting auðlinda er rauður þráður í starfseminni og hefur BM Vallá sett sér það metnaðarfulla markmið að verða umhverfisvænsti steypuframleiðandi landsins.

Markvisst er stefnt að því að starfsemi og steypuframleiðsla BM Vallár verði kolefnishlutlaus árið 2030.

HELLUR OG STOÐVEGGIR

MÚR- OG FLOTBLÖNDUR

HÚSEININGAR

FORSTEYPTAR HÚSEININGAR

Húseiningar eru hagkvæmur valkostur fyrir fólk sem hugar að byggingaframkvæmdum. Allar húseiningarnar eru sérhannaðar og forsteyptar innanhúss við bestu mögulegu aðstæður.

Styttri byggingartími er einn helsti meginkostur einingahúsa þar sem þau rísa almennt hraðar en staðsteyptar byggingar. Það getur skilað sér í lægri byggingarkostnaði og minni óvissu.

KÍKTU TIL OKKAR

Verið velkomin í múr- og fagverslanir BM Vallár í Reykjavík og á Akureyri. Í verslun okkar að Bíldshöfða 7 finnur þú allt það helsta fyrir múrverk, steypuframkvæmdir, hellulagnir og fjölbreytt úrval steyptra vara til að fegra garðinn.

Í nýrri verslun okkar á Bíldshöfða 7 er einnig að finna söluskrifstofur og sýningarsvæði með hellum og garðeiningum, þar sem sérfræðingar BM Vallár veita áreiðanlega ráðgjöf um vörur og framkvæmdir við húsið þitt.

Við hlökkum til að taka á móti þér — hvort sem það er á Bíldshöfða 7 í Reykjavík eða í verslun okkar á Sjafnargötu 3 á Akureyri.

Bíldshöfði 7 | 110 Reykjavík

Bíldshöfði 7 | 110 Reykjavík

Sjafnargötu 3 | 603 Akureyri

Allt það markverðasta úr starfseminni, fréttir og fróðleikur sem við höfum tekið saman fyrir viðskiptavini okkar og aðra áhugasama um vistvænni mannvirkjagerð.