Beint í efni
Mínar Síður

GÚMMÍHELLUR - Gerum garðinn öruggari


GÚMMÍHELLUR FRÁ FLEXIZONE

Gúmmíhellur eru falleg og örugg viðbót við garðinn eða útisvæðið

Gúmmíhellurnar frá Flexizone eru sérstaklega hannaðar fyrir leiksvæði þar sem gerðar eru miklar kröfur um öryggi, endingu og þægindi. Hellurnar eru framleiddar úr endurunnu SBR gúmmíi og eru gegnumlitaðar, sem tryggir að þær halda bæði lit og lögun þrátt fyrir mikla notkun og breytilegar veðuraðstæður.

Sérstök uppbygging á neðra borði hellanna, með hálfkúlum, eykur sveigjanleika og höggdeyfingu. Þetta skapar mýkra undirlag sem dregur úr álagi við fall og eykur öryggi notenda. Á sama tíma hjálpar uppbyggingin við frárennsli vatns og heldur yfirborðinu þurrara.

Gúmmíhellurnar líta út eins og hefðbundnar hellur en bjóða upp á þægindi, mýkt og aukið öryggi. Tilvalið er að nota þær í kringum heita potta, á svalir, á æfingasvæði heima við eða undir tækjum þar sem börn eru að leik.

Gúmmíhellurnar eru skemmtileg viðbót við hefðbundnar hellur og pallaefni, hvort sem markmiðið er að fegra lóðina, mýkja ákveðin svæði eða auka öryggi þar sem börn og fullorðnir eru á ferli. Viðhald er einfalt og felst aðallega í reglulegri hreinsun. Hægt er að þrífa hellurnar með vatni eða háþrýstidælu til að fjarlægja óhreinindi og sand. Engin flókin eða sérhæfð efni eru nauðsynleg, sem gerir þær að hagkvæmri lausn til lengri tíma.

Af hverju að velja Flexizone?

Öruggt undirlag sem hreyfir við leikgleðinni

  • Höggdeyfing sem verndar gegn meiðslum
  • Gegnumlitaðar SBR hellur – missa ekki form eða lit
  • Rennivörn og vatnsgegndræpi
  • Frostþolnar – henta íslenskum aðstæðum
  • Fljótleg og einföld uppsetning með pinnakerfi

Tæknilegar upplýsingar

  • Stærð: 500 × 500 mm (4 stk. seldar saman sem 1 fm)
  • Þykkt: 50 mm (hægt að sérpanta frá 40–120 mm - fer eftir fallvörn)
  • Litir: svart, rautt, og grátt (hægt að sérpanta aðra liti)
  • Efni: endurunnið SBR gúmmí
  • Festing: tengdar saman með pinnum sem fylgja

Hvar á ég að leggja hellurnar?

Gúmmíhellurnar eru hannaðar með fjölbreytta notkun í huga og henta meðal annars:

  • Í kringum heita potta og laugar þar sem þörf er á hálkulausu og þægilegu yfirborði
  • Á svalir og palla sem mjúkt og vatnsgegndræpt yfirborð
  • Undir hin ýmsu leiktæki, rólur, klifurgrindur eða trampólín
  • Á æfingasvæði heima við, undir lóð eða tæki
  • Á göngustíga og útisvæði þar sem þægindi og öryggi skipta máli

Undirbúningur

Til að tryggja endingargóða lögn þarf um 60 cm þykkt og þjappað frostfrítt burðarlag og 5 cm laust sandlag til að leggja gúmmíhellurnar í.

Þjappið burðarlagið og lagfærið yfirborðið þannig að það sé slétt og í réttri hæð. Yfirborð burðarlagsins þarf að vera svo þétt í sér að lausa sandlagið, undirlagið sem gúmmíhellurnar eru lagðar í, sáldrist ekki niður.

Hægt er að blanda mismunandi þykktum til að ná réttri fallvörn á mismunandi svæðum.

Leikvellir og skólalóðir

Gúmmíhellurnar frá Flexizone eru sérstaklega hannaðar fyrir leiksvæði þar sem gerðar eru miklar kröfur um öryggi, endingu og þægindi.

Hellurnar eru prófaðar með tilliti til fallvarna samkvæmt HIC (Head Injury Criterion), sem segir til um hversu mikla fallhæð yfirborðið þolir án þess að auka hættu á höfuðmeiðslum. Þykkari hellur veita meiri höggdeyfingu og gera þannig kleift að aðlaga lausnina að mismunandi þörfum leiksvæða, hvort sem um er að ræða leikskóla, skóla eða almenn útivistarsvæði.

Hafðu samband

Við höfum tekið saman algengar spurningar og svör sem snúa að gúmmíhellunum. Söluráðgjafar okkar geta einnig svarað spurningum og leiðbeint í síma 412 5050 eða í gegnum tölvupóst.

ALGENGAR SPURNINGAR OG SVÖR

Hvað þarf að undirbúa áður en hellurnar eru lagðar?
Er hægt að leggja hellurnar á steypt yfirborð?
Get ég lagt hellurnar sjálf/ur eða þarf fagmann?
Hversu vel þola hellurnar íslenskt veður?
Verða hellurnar sleipar í bleytu?
Þarf reglulegt viðhald og hversu lengi endast þær?
Hvernig er best að þrífa gúmmíhellur?
Hvað kostar svona lausn?
Hvað tekur langan tíma að afhenda?
Hvar eru hellurnar framleiddar?