27.01.2026
Átta samfélagsverkefni hlutu styrk
Á dögunum var úthlutað úr Hjálparhellu, samfélagssjóð BM Vallár og fengu átta mikilvæg samfélagsverkefni fjárstyrk úr sjóðnum. Við erum afar stolt af því að geta stutt þessi fjölbreyttu og verðmætu verkefni sem öll vinna að jákvæðum breytingum í samfélaginu.
Hjálparhella var sett á laggirnar með það að markmiði að styðja við verkefni sem efla samfélagið, styrkja einstaklinga og skapa raunveruleg áhrif. Sjóðurinn veitir styrki til verkefna á sviði íþrótta- og æskulýðsstarfs, góðgerðarmála, umhverfis- og sjálfbærnimála sem og nýsköpunar. Sérstök áhersla er lögð á verkefni sem samræmast gildum BM Vallár, stefnu fyrirtækisins og þeim heimsmarkmiðum sem við höfum sett í forgang.

Við viljum færa öllum styrkþegum innilegar þakkir fyrir óeigingjarnt starf í þágu samfélagsins og óskum þeim velfarnaðar í áframhaldandi verkefnum. Það er okkur sannur heiður að fá að styðja ykkur.
Þau verkefni sem hlutu fjárstyrk fyrir árið 2025 eru:
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur eru góðgerðarsamtök sem styðja við fjölskyldur með börn sem búa við erfiðar fjárhagsaðstæður. Styrkurinn úr Hjálparhellu var veittur í desember og nýttist til kaupa á jólagjöfum handa börnum skjólstæðinga. Sérstök áhersla var lögð á gjafir fyrir börn á aldrinum 9-17 ára, þar sem sá hópur hefur síður notið stuðnings áður.

Bergið Headspace
Síðan 2019 hefur Bergið verið öruggur staður fyrir ungmenni um allt land. Á þessum tíma hafa um 3.000 ungmenni á aldrinum 12-25 ára nýtt sér þjónustuna, og í dag veita þau um 120 viðtöl á viku og áætla að viðtölin í ár verði um 5.000. Styrkurinn styður við mikilvæga starfsemi Bergsins og tryggir að ungmenni um allt land hafi áfram öruggan stað til að leita til.

Samhjálp
Samhjálp hefur í áratugi veitt jaðarsettum hópum stuðning, mat og hlýjan félagsskap. Á Kaffistofu Samhjálpar fá einstaklingar sem glíma við fátækt, félagslega einangrun og heimilisleysi daglega heita máltíð og öruggan samastað.
Með styrknum úr Hjálparhellu er Samhjálp studd í því mikilvæga verkefni að finna nýtt og hentugra húsnæði fyrir kaffistofuna, svo hægt sé að halda áfram að gefa allt að 250 máltíðir á dag og tryggja áframhaldandi hlýju og mannúð þeim sem mest þurfa á að halda.

Flugbjörgunarsveitin Reykjavík
Flugbjörgunarsveitin Reykjavík er sjálfboðaliðasveit sem sinnir leitar- og björgunarstörfum á landi og sjó og er hluti af Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Sveitin hefur gegnt mikilvægu hlutverki í neyðaraðgerðum á höfuðborgarsvæðinu og víðar allt frá stofnun árið 1950.
Heiða Jónsdóttir, formaður Flugbjörgunarsveitar Reykjavíkur og gæðastjóri hjá Hornsteini, var valin Hjálparhella ársins af samstarfsmönnum sínum. Heiða hefur verið sjálfboðaliði í sveitinni í 25 ár. Með styrknum viljum við heiðra hennar óeigingjarna framlag og um leið styðja við það ómetanlega samfélagsstarf sem sveitin sinnir.

Íþróttasamband fatlaðra
Í Íþróttasamband fatlaðra Íslands (Í.F.) vinnur að því að tryggja að allir hafi jafnan aðgang að íþróttum, óháð fötlun. Í.F. fer með yfirumsjón íþrótta fatlaðra á Íslandi, styður við félög um allt land og gætir hagsmuna fatlaðra íþróttaiðkenda. Styrkurinn mun nýtast í fjölbreytt starf samtakanna.

Ungir umhverfissinnar
Ungir umhverfissinnar eru frjáls félagasamtök sem veita ungu fólki vettvang til að taka virkan þátt í umhverfismálum og láta gott af sér leiða. Samtökin vinna að því að efla upplýsta umræðu um umhverfismál og stuðla að sjálfbærri þróun, náttúruvernd og ábyrgri nýtingu auðlinda. Styrkurinn úr Hjálparhellu mun nýtast til að styðja við ýmiss fræðslu- og vitundarvakningarverkefni samtakanna.

Handan dalanna - bók fyrir fólk af erlendum uppruna
Kristín Guðmundsdóttir skrifar og gefur út bækur sem ætlaðar eru fólki af erlendum uppruna sem er að læra íslensku. Bækurnar byggja á smásögum þar sem orðaforði og orðasambönd eru útskýrð á aðgengilegan hátt og styðja við áframhaldandi málþroska eftir grunnnám. Styrkurinn felst í kaupum á nýjustu bók Kristínar, Handan dalanna, sem verður afhent erlendum starfsmönnum fyrirtækisins.

Með tengsl við tauminn - Andrea Diljá Ólafsdóttir
Með tengsl við tauminn er nýtt samfélagslegt námsúrræði fyrir börn á aldrinum 12-16 ára sem glíma við kvíða, skólaforðun og félagslega einangrun. Verkefnið fer fram í hesthúsi og byggir á rólegu og öruggu umhverfi, skýru verklagi og reynslunámi þar sem unnið er markvisst að því að efla líðan, sjálfstraust og færni nemenda með aðstoð hesta. Hér er hesturinn meðferðaraðilinn og áhersla lögð á lausnamiðun og trú á eigin getu.
Styrkurinn úr Hjálparhellu nýtist til að ljúka uppbyggingu aðstöðu og er nú fyrsta prufulota verkefnisins hafin. Verkefnið er staðsett á Akureyri og komst Andrea Diljá Ólafsdóttir ekki á afhendinguna, við óskum henni innilega til hamingju með verkefnið.
Viðskiptavinir leggja sitt af mörkum
Í gegnum tíðina hafa verið veittir margvíslegir styrkir til samfélagsverkefna, smáum sem stórum, til lengri eða skemmri tíma. Viðskiptavinir BM Vallár gegna mikilvægu hlutverki í samfélagsverkefnum fyrirtækisins en ákveðið hlutfall af ársveltu fer í málaflokkinn. Þannig geta allir verið hjálparhellur!
Ert þú með samfélagsverkefni sem hefur jákvæð áhrif á samfélagið? Opnað hefur verið fyrir umsóknir fyrir árið 2026.