07.11.2025
BM Vallá styður Neyðarkall björgunarsveitanna 2025
Um helgina ganga björgunarsveitir landsins í hús með Neyðarkallinn – tákn sem stendur fyrir hugrekki, samstöðu og óeigingjarnt starf.
Að þessu sinni er Neyðarkallinn tileinkaður minningu Sigurðar Kristófers McQuillan Óskarssonar, formanns björgunarsveitarinnar Kyndils í Mosfellsbæ, sem lét lífið í æfingu í Tungufljóti í fyrra. Hann var ungur og kraftmikill björgunarsveitarmaður sem helgaði líf sitt því að hjálpa öðrum – og í ár minnir Neyðarkallinn okkur á þann anda sem knýr allt starf björgunarsveitanna áfram.
Björgunarsveitir og slysavarnadeildir gegna lykilhlutverki í samfélaginu – þær mæta þar sem hættan er mest, allan sólarhringinn, allt árið um kring. Sjálfboðaliðarnir sem þar starfa sýna ótrúlegt hugrekki og ábyrgð, hvort sem um er að ræða náttúruvá, slys eða leit að fólki í neyð.
BM Vallá er stolt af því að leggja sitt af mörkum með kaupum á Neyðarkallinum og hvetur alla til að styðja þetta ómetanlega starf.
Við kaup á Neyðarkalli styrkir þú björgunarsveitirnar um búnað, þjálfun og viðbragðsgetu – en umfram allt styrkir hann þá sem standa vaktina fyrir okkur öll.
Í kjölfar umfjöllunar sem skapast hefur viljum við hjá BM Vallá undirstrika það að þegar á slysstað er komið er ekki spurt um stað og stund. Við lítum svo á að Neyðarkallinn í ár sé fallegur virðingarvottur við Sigurð Kristófer og þau sem sýna hugrekki, fórnfýsi og samkennd í þágu annarra. Við þökkum björgunarsveitunum og slysavarnadeildum fyrir ómetanlegt starf og þann óbilandi metnað, samstöðu og hugrekki sem þær sýna ár eftir ár. ❤️
Gangi ykkur vel með Neyðarkallinn.
