Beint í efni
Mínar Síður

29.09.2025

Þrír stjórnendur ljúka MDP-þjálfun

Þrír framkvæmdastjórar innan raða Hornsteins og dótturfélaga luku nýverið við Management Development Programme (MDP), árlegu stjórnendanámi Heidelberg Materials í Norður-Evrópu. MDP er haldið í samstarfi við Chefakademin og miðar að því að efla leiðtogahæfni stjórnenda á þremur sviðum: að leiða sjálfan sig, að leiða aðra og að leiða fyrirtækið. Í ár luku 21 stjórnandi náminu sem lauk með hátíðlegri útskriftarathöfn í Sigtunahöjden, Stokkhólmi.

Þátttakendur frá Íslandi voru þau Steingrímur Jónsson, framkvæmdastjóri húseiningasviðs BM Vallár, Sigríður Ósk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri umhverfis- og gæðasviðs Hornsteins (móðurfélag BM Vallá) ásamt Ara Elíssyni, framkvæmdastjóra framleiðslusviðs Björgunar-Sements (systurfélag BM Vallá).

Steingrímur sagði að námið hefði verið gagnlegt og bætti við „Það sem ég tek helst með mér úr því er hvernig það sameinar fræðilega þekkingu og hagnýt verkfæri sem nýtast í daglegri stjórnun. Áherslan á að leiða sjálfan sig áður en maður leiðir aðra var mér sérstaklega gagnleg. Ég kem út úr þessu ferli með skýrari sýn á hlutverk mitt sem leiðtogi og hvernig ég get skapað betra starfsumhverfi fyrir mitt fólk.“

Steingrímur Jónsson, framkvæmdastjóri húseiningasvið.

Við óskum Ara, Sirrý og Steingrími innilega til hamingju með þennan frábæra áfanga!

MDP-final 2025
Útskriftarhópurinn 2025.
Dagsetning
29.09.2025
Deila