Eitt sterkasta álagsflotið á markaðnum í dag. Það hentar mjög vel á þá staði sem gerðar eru kröfur um háan slitstyrk, t.d. bílskúrsgólf, verkstæðisgólf o.fl.
Notkunarsvið: Innanhúss fyrir verkstæði, bílastæðahús, gripahús og þar sem álag er mikið. Algengasta þykktarlag er 5–15 mm.
- Mjög góðir útjöfnunareiginleikar og viðloðun við undirlag.
- Rýrnar lítið við þornun og hörðnun.
- Óbrennanlegt A1 gólf, EN 13501-1:2002.
- Hægt að handhræra eða dæla.
- Þolir mikið álag, hefur 50 Mpa þrýstiþol.
- Hraðharðnandi, við venjulegt hitastig má ganga á vinnslufleti eftir 2–3 klukkutíma.
- CE-merking tryggir að StoCrete uppfyllir kröfur Evrópusambandsins samkvæmt staðlinum SS-EN 13813.
Pokinn er 20 kg.
Ávallt skal fylgja tækniblaði við blöndun og notkun á vörunni.
Smelltu hér til að sjá nánar tækniblöð, öryggisblöð og samræmisyfirlýsingu frá Sto ásamt umhverfisyfirlýsingu (EPD).