




Hamar | Stoðveggur | 100x60 cm
30-060-Grár
Product information
Short description
Ný hönnun! Steyptir stoðveggir frá BM Vallá eru snjöll, stílhrein og hentug lausn fyrir garða og útivistarsvæði. Fást í sex mismunandi stærðum.
Description
Nýir steyptir stoðveggir frá BM Vallá eru snjöll, stílhrein og hentug lausn fyrir garða og opin svæði. Veggirnir eru fáanlegir í sex mismunandi stærðum sem gera þá fullkomna til að jafna út hæðarmismun í landslagi eða bæta garðhönnun. Einnig er hægt að fá 90° horn sem eykur enn frekar á notkunarmöguleika og leyfir fjölbreyttari útfærslur. Með nýrri og endurbættri hönnun er uppsetning á stoðveggjunum auðveldari og fljótlegri.
Stoðveggurinn er með sléttri steinsteypuáferð báðum megin og er útlit hans eins að framan og aftan. Hægt er að setja stoðveggina saman á tvo mismunandi vegu, allt eftir því í hvaða tilgangi verið er að nota stoðvegginn.
1) Stoðveggir festir saman með vinklum/boltum, t.d. ef stoðveggurinn á að halda jarðvegi öðru hvoru megin, eru einingarnar boltaðar saman með vinklum við uppsetningu. Þetta tryggir hámarksstyrk og stöðugleika veggjarins.
2) Stoðveggir festir saman með hraðþenslumúr, t.d. þegar markmiðið er að afmarka svæði eða búa til skjólgirðingu, er hægt að sérpanta stoðveggi með raufum sem steyptar eru saman með þenslumúr. Með þessari aðferð eru engar festingar, vinklar eða boltar sjáanlegir á hvorri hlið, sem gerir útlitið stílhreint og snyrtilegt.
Stoðveggir eru vinsælir í garða og útivistarsvæði þar sem þeir setja sterkan svip á umhverfið.
Stoðveggir eru sérpöntunarvara og fást í eftirfarandi stærðum:
- 100 cm breidd x 60 cm hæð
- 100 cm breidd x 90 cm hæð
- 100 cm breidd x 120 cm hæð
- 200 cm breidd x 60 cm hæð
- 200 cm breidd x 90 cm hæð
- 200 cm breidd x 120 cm hæð