Filigran loftaplötur henta í flestar tegundir bygginga. Plöturnar eru með stálmótaáferð að neðanverðu en með hrjúfu yfirborði að ofan til að tryggja viðloðun við ásteypulagið. Þær eru 6–8 cm þykkar og járnbentar samkvæmt fyrirmælum hönnuðar hverju sinni. Rafmagns- eða LED dósum er komið fyrir, allt eftir óskum viðskiptavinarins.
Forspennt filigran loftaplata býður upp á mikla möguleika í nýtingu rýmis. Með því að forspenna loftaplöturnar er hægt að láta þær spanna meiri haflengdir vegna aukins burðarþols.
Allar filigran loftaplötur eru sérframleiddar eftir teikningum viðskiptavina. Mesta breidd filigran plötu er 2,4 m og lengdir fara eftir spennivíddum.
Kostir þess að nota filigran loftaplötur eru m.a. þeir að byggingartíminn er styttri því ekki er um hefðbundinn plötuuppslátt að ræða. Þar af leiðandi er sáralítil efnisrýrnun móta. Neðra byrði er slétt og því tilbúið til sandspörslunar og allar loftadósir þegar komnar í.