Steypt einfalt L-eininga sorptunnuskýli er fyrst og fremst hugsað sem stækkunareining fyrir E-eininga skýli (tvöfalt, þrefalt eða fjórfalt) eða Einfalt U-skýli.
L-einingunni er komið upp þétt við hlið skýlisins, sem á að stækka, (nota þarf lyftikrana til verksins). Það þarf ekki að naglfesta eða bora L-eininguna við aðrar einingar, svo framarlega sem undirlagið sé steypt eða hellulagt og frostfrítt.
L-einingar fást bæði fyrir hægri og vinstri hlið, en ef það á að nota eininguna sem stækkun fyrir E-einingu mælum við með að hægri hlið sé notuð þar sem hún kemur með innsteyptum götum fyrir pumpu til að lyfta hurðarloki.
Einingaverð í vefverslun er gefið upp fyrir staka einingu. Fylgihlutir eins og hurð, lok, pumpur og seglar eru seld sérstaklega.
Heildarverð á skýli með einni hurð, loki og pumpu: 175.385 kr.
Stærð:
Lengd: 80 cm
Breidd: 92 cm
Hæð: 115 cm
Mikilvægt er að ruslatunnuskýli séu lögð á frostfrían jarðveg með hellulögðu eða steyptu undirlagi. Hægt er að fá hurðir eða hurðaramma á skýlin sem eru framleidd hjá BM Vallá.