Sorptunnuskýli fyrir gáma eru hentug lausn fyrir fjölbýlishús og vinnustaði. Skýlin koma í tveimur stærðum, annars vegar rúma þau 660 lítra gám og hins vegar 1.100 lítra gám. Lokin á skýlunum festast við stöng á sjálfum gámnum sem gera þau sérlega meðfærileg og þægileg í notkun. Mælt er með að setja hurðir og lok á skýlin ásamt pumpu til að auðvelda opnun hurðarloks.
Einingaverð á sorptunnuskýli í vefverslun er gefið upp fyrir staka einingu. Aukahlutir eins og hurðir, lok, pumpur og seglar eru seld sér.
Heildarverð á 660 L gámaskýli með tveimur hurðum, loki og pumpu: 436.466 kr.
Heildarverð á 1100 L gámaskýli með tveimur hurðum, loki og pumpu: 544.920 kr.
Stærðir:
Skýli fyrir 1100 L gám:
Lengd:158 cm | Breidd:130 cm | Hæð:150 cm
Skýli fyrir 660 L gám:
Lengd:158 cm | Breidd:97 cm | Hæð:135 cm
Mikilvægt er að ruslatunnuskýli séu lögð á frostfrían jarðveg með hellulögðu eða steyptu undirlagi. Hægt er að fá hurðir eða hurðaramma á skýlin sem eru framleidd hjá BM Vallá.